Byggðasafnið á Garðskaga
Saga, menningararfur og náttúra á Garðskaga
Byggðasafnið á Garðskaga, stofnað árið 1995, stendur á fallegu safnasvæði við Garðskagavita í Suðurnesjabæ. Svæðið er hluti af Reykjanes Geopark, sem er á lista UNESCO yfir jarðfræðilega mikilvægar heildir þar sem áhersla er lögð á verndun, fræðslu og sjálfbæra þróun. Hér er víðsýnt til allra átta, fjölbreytt fuglalíf, síbreytilegt hafið og vinsælar gönguleiðir meðfram ströndinni.
Menningarminjar og sjósókn á Suðurnesjum
Safnið varðveitir og miðlar sögu fólks á Suðurnesjum og tengir gesti við menningarminjar svæðisins. Í nágrenninu má finna Skagagarðinn frá 10. öld á Rosmhvalanesi, eitt merkasta mannvirki svæðisins. Á safnsvæðinu stendur einnig vélbáturinn Hólmsteinn GK20, 43 tonna trébátur sem minnir á sjósókn fyrri tíma.
Einstakt aðdráttarafl safnsins er Vélasafn Guðna Ingimundarsonar þar sem um 60 uppgerðar vélar eru til sýnis, margar gangfærar. Þá má sjá Trukk Guðna, sem hefur orðið óformlegt tákn safnsins.
Súðbyrðingar og óáþreifanlegur arfur
Á safninu er varðveittur sexæringurinn Fram, smíðaður 1887 með Engeyjarlagi. Báturinn er dæmi um súðbyrðinga, norræna bátasmíðaaðferð sem er á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. Einnig eru á safninu 14 líkön af gömlum húsum úr Sandgerði sem sýna byggingarhefð og samfélag fyrri tíma.
Safnverzlun og sögulegar innréttingar
Nýlega var opnuð safnverzlun og móttaka með innréttingum frá 1921 úr Verzlun Þorláks Benediktssonar í Akurhúsum í Garði. Við innganginn er landakort af Reykjanesi sem tengir söguna við landslagið.
Tíu hugmyndir af afþreyingu á Reykjanesi
- Á Reykjanesi eru fjölmargar fallegar gönguleiðir. Ef þú kýst gott útsýni er upplagt að ganga á fjallið Keili eða á Þorbjörn rétt við Grindavík.
- Skoðaðu heillandi bátasafn Gríms (módel), listsýningar og sýningar um sjósókn o.fl. í Duus Safnahúsi við smábátahöfnina í Keflavík. Þar við býr einnig barngóða skessan í helli sínum.
- Víkingaheimar eru í fallega hannaðri byggingu í Reykjanesbæ. Miðpunktur þess er víkingaskipið Íslendingur sem sigldi frá Íslandi til New York árið 2000. Það er eftirlíking af Gaukstaðaskipinu sem fannst í Noregi árið 1880.
- Gakktu yfir Brúna milli heimsálfa; hvergi er auðveldara að fara á milli Evrópu og Norður-Ameríku!
- Skoðaðu aðra staði í Reykjanes jarðvangi, svo sem hið nýja Fagradalshraun í Geldingadölum, fallega hraunhella í eldri hraunum, Gunnuhver eða Brimketil.
- Dáðstu að litríku jarðhitasvæðinu í Seltúni við Krýsuvík og sjáðu gufurnar frá hverunum stíga upp með tilheyrandi brennisteinslykt.
- Rokkið lifir í Reykjanesbæ! Skoðaðu Rokksafn Íslands í Hljómahöll, safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi.
- Skoðaðu tignarlegan Reykjanesvita, en þar skammt frá var fyrsti viti á Íslandi reistur 1908. Þar er stytta af síðasta Geirfuglinum, með útsýni til Eldeyjar, þar sem síðasti fuglinn var drepinn 1844.
- Það eru einnig blómlegar fuglabyggðir á Reykjanesi. Krýsuvíkurbjarg er stærsta fuglabjarg nessins með um 60.000 varpfugla á sumrin.
- Skelltu þér í eina af sundlaugum eða baðstöðum svæðisins. Vatnaveröld í Keflavík er tilvalin fyrir fjölskyldur og ekki má gleyma hinu heimsfræga Bláa Lóni.
Nánari upplýsingar á www.reykjanes.is.


















