Uppsveitir Árnessýslu

ArfleifðBókmenntirByggingarHátíðirListMaturMinjarNáttúraVíkingar

Velkomin í Uppsveitir  Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Þar má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja, frægar náttúruperlur, sögustaði og minna þekkta staði líka.  Í uppsveitunum finnur þú fallega fossa, heitar lindir  og alls kyns upplifun fyrir alla aldurshópa. Allir þekkja Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Skálholt en svæðið hefur upp á svo margt annað skemmtilegt að bjóða. Gullna hringinn þekkja örugglega flestir en hann er mun stærri en margur heldur, eiginlega líkari gullinni keðju en hring. Í Uppsveitum Árnessýslu er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að sjá og upplifa og fjölmargir staðir sem ekki má láta fram hjá sér fara. Við viljum gjarnan að ferðamenn dvelji hjá okkur sem lengst og njóti alls þess sem er í boði á svæðinu. Dagsferðir eru vinsælar en mælt er með að fólk dvelji lengur og fyrir þá sem það gera eru fjölbreyttir gistimöguleikar; tjaldsvæði, gistiheimili, sumarhús, hótel og fjallaskálar. Margir staðir bjóða heita potta og alltaf má finna sundlaug í nágrenninu. Fjölbreyttir veitingastaðir bjóða gestum matvæli úr heimabyggð og matarupplifanir enda eru Uppsveitirnar mikil matarkista og vagga grænmetisræktunar á Íslandi.

Margvísleg afþreying

Í Uppsveitum Árnessýslu er afþreying í boði fyrir alla fjölskylduna og öll áhugasvið. Hægt er að leigja hesta eða fara á hestasýningu, skella sér í veiði eða á fjórhjól, heimsækja hella, fara á snjósleða eða í flúðasiglingu. Þetta svæði er kjörið fyrir fugla áhugamenn og göngugarpa, göngustígar eru í skógunum og lítil fell til að klífa. Dýragarðurinn í Slakka í Laugarási er vinsæll staður að heimsækja fyrir alla fjölskylduna og í Uppsveitum er m.a. að finna adrenalíngarð, gallerý, söfn og áhugaverðar sýningar, margar sundlaugar og golfvelli. Hægt er að spila frisbígolf, fótboltagolf, strandblak og heimsækja íþrótta- og leikvelli. Gestir og gangandi velja svo hvort þeir vilja kyrrð og ró, fróðleik, spennu eða sitt lítið af hverju. Skemmtileg lítil þorp og byggðakjarnar eru nokkrir; Flúðir, Laugarvatn, Brautarholt, Árnes, Reykholt, Laugarás, Borg og Sólheimar. Þar er fjölbreytta þjónustu að finna og upplagt að dvelja um stund, kíkja á tjaldsvæðin eða gististaði og skoða hvað er í boði í nágrenninu og hvað er hægt að gera sér til skemmtunar. Alltaf eitthvað nýtt og spennandi í hverri heimsókn.

Einstök náttúra

Náttúra Uppsveitanna er falleg og fjölbreytt og þar má t.d. nefna Kerið, Úlfljótsvatn, Þjórsárdal, Brúarhlöð, Kerlingarfjöll, Kjöl, Háafoss, Laxárgljúfur, Hjálparfoss, Haukadalsskóg, Faxa og nágrenni Laugarvatns. Miklir útivistarmöguleikar eru á svæðinu, gönguleiðir og skipulagðar gönguferðir og hver árstíð hefur sinn sjarma.

Aratunga, 801 Selfoss
lina@sveitir.is
www.sveitir.is
+354 480 3000
Opnunartímar:

Í Uppsveitum Árnessýslu er margvísleg ferðaþjónusta í boði allt árið.

GistingGönguleiðirHreinlætisaðstaðaMinjagripasalaMinjastaðurSöguslóðSýningVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is