Akranesviti á Vesturlandi

ByggingarNáttúra

Tákn Vesturlands

Akranesviti stendur vestast á Akranesi og er eitt af helstu kennileitum Vesturlands. Vitarnir eru tveir: sá eldri var reistur árið 1918 á Suðurflös eftir teikningum Thorwalds Krabbe og er einn elsti steinsteypti viti landsins. Hann er ferstrendur, hvítmálaður og 10 metra hár. Ljóshús hans var upphaflega byggt úr stálplötum sem bjargað var úr skipinu Goðafossi sem strandaði árið 1917. Núverandi ljóshús smíðuðu Kiwanismenn árið 1992.

Á árunum 1943–1944 var reistur nýr sívalur viti austan við þann eldri, eftir teikningu verkfræðingsins Axels Sveinssonar. Hann er 22,7 metrar á hæð og var tekinn í notkun árið 1947. Ljóseinkenni vitans er Fl(2)WRG 20s, sem þýðir tvö blikkljós í þrískiptum geira á 20 sekúndna fresti.

Ferðamannaupplifun í Akranesvita

Í dag er Akranesviti opinn almenningi og hefur orðið eitt vinsælasta aðdráttarafl Akraness. Gestir geta gengið upp í vitann og notið stórfenglegrar fjallasýnar frá Reykjanesskaga til Snæfellsjökuls. Vitinn er einnig notaður fyrir listsýningar og tónleika, þar sem hljómburðurinn er einstakur og upplifunin ógleymanleg.

Hvort sem þú hefur áhuga á sögu og menningu eða einfaldlega vilt njóta útsýnis og einstakrar stemningar þá er Akranesviti staður sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara.

Upplýsingar fyrir gesti

Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akranesi er starfrækt í þjónustuhúsi Akranesvita. Þar er hægt að fá nánari upplýsingar um vitann, opnunartíma og viðburði sem tengjast honum. Á vef Akraness má finna yfirlit helstu viðburða á svæðinu.

Hér á síðu markaðsstofu Vesturlands getur þú fengið fleiri hugmyndir að afþreyingu og upplifun á Vesturlandi.

 

Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is