• Deutsch (DE-CH-AT)
  • English (United Kingdom)
Prentvæn útgáfa
logo  Gísla sagaIsland_small_nvest
sagatrailR-minjastadurgistingsalerni Hátíðarsvæði við sjávarsíðuna
vikingar

Gísla saga gerist að mestu á Vestfjörðum undir lok 10. aldar. Hún fjallar um Gísla Súrsson, einn frægasta kappa Íslandssögunnar, systkini hans og maka þeirra. Gísli bjó að Hóli í Haukadal, skammt utan við Þingeyri við Dýrafjörð, með Auði konu sinni. Vegna hefndarvíga innan fjölskyldunnar þar sem eitt leiddi af öðru var Gísli að lokum dæmdur í útlegð. Eftir 13 ára útlegð, þar sem Gísli þurfi oft að skipta um felustaði, var hann loks veginn af óvinum sínum. Félagið Víkingar á Vestfjörðum var stofnað á Þingeyri árið 2003 til að vinna með Gísla sögu og gera sögustaði hennar aðgengilega ferðamönnum. Einnig hefur félagið komið upp hátíðarsvæði í fornum stíl á Þingeyraroddanum, hlöðnum hring úr sjávargrjóti og torfi með langeldi í miðju er rúmar yfir 300 manns í sæti. Unnið er að því að koma þar upp leikvæði fyrir börn, þingbúðum og sölubúðum fyrir hátíðir í anda víkinganna. Víkingar á Vestfjörðum hafa einnig staðið fyrir ýmiss konar námskeiðum í handverki víkingaldar og margir félagsmenn hafa komið sér upp vönduðum víkingabúingum og skarti. Víkingar á Vestfjörðum bjóða þig velkominn!

 

Bæjarhátíð með sögutengdu ívafi er haldin fyrstu helgina í júlí. Siglingar í boði á víkingaskipinu Vésteini.

49 km frá Ísafirði

Haukadalur, þar sem Gísli bjó, er fallegur dalur, einungis 5 km utan við Þingeyri


Vefsíða:  www.westvikings.info

Netfang:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

banner_gisla